Jamaica
21. mars 2008
| 8 myndir
Við fórum í 10 daga ferð til Jamaica s.l haust. Þetta ferðalag var fínasta afslöppun, við vorum á Runaway Bay á Bahia Principe sem að er mjög flott hótel. Einu myndirnar sem við tókum var úr hótelgarðinum og þær því ekkert spes. Við fórum í eina ferð á flekasiglingu og það fannst okkur nóg. Við fórum á einn markað og það var ekki skemmtileg upplifun, alveg gífurleg fátækt þarna og ekki gaman að eiga myndir af fólki betlandi og af niðurníddum bárujárnskofum. Í hótelgarðinum gátum við verið óáreitt og það fannst okkur fínt.