Aldurstengdur athyglisbrestur?

Gömul og góð saga, allavega á að vera hægt að brosa út í annað Undecided

Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi  sem nýlega hefur fundist  greining á, en engin lækning við, enn sem komið er.Blush Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp: Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá eftir að bréf höfuð borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara í gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn.   Sorteraði póstinn og ákvað að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði því reikningana sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga, fyrst ég yrði við bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo ég gleymdi því ekki. Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst.  Á leið inn í eldhús tók ég eftir  því að blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt. Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið áður en lengra væri haldið.   Náði  í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á  eldhúsborðinu. Ákvað að fara með hana á sinn stað í sjónvarpsherbergi  fyrst svo ég fyndi hana  örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á uppáhaldsþáttin minn,  “aðþrengdar eiginkonur”.  Á leið í sjónvarpsholið rakst ég  handklæði sem ég ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti. Fór þangað og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að letia að fyrr um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og fór með gleraugun inn í svefnherbergi  þar sem ég ætalaði örugglega að finna þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína....  ef ég finna hana. Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera!!! Í lok dags hafði  ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki vökvað blómin eða þvegið þvottinn, ekki farið út með ruslið, heldur ekki svarað   e-mailnum og  var auk þess búin að týna fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og kaffið beið kalt á eldhúsborðinu. Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum snúningum. PinchÉg hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætal að leita mér hjálpar við. Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða Age Activated Attentinon Deficit Disorder"     á íslensku  "Aldurstengdur athyglisbrestur" Halo

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú meinar half-zeimer  kveðja SG

Sista (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband