Ef þú hefur tíma þá endilega lestu þetta.....

 

Endilega lesið þetta það er nefnilega ansi mikið til í þessu

Ég las þessa grein í Kópavogspóstinum fyrir nokkrum árum og fannst hún þá og enn alveg frábær. Höfundur hennar heitir Gunnar Kr. Sigurjónsson. Ég las hana einu sinni á Emblufundi og tók mér það bessaleyfi að bæta aðeins í hana og endurorða sumt. En eftir sem áður er góð vísa ekki of oft kveðin ( eða þannig sko). 

Þessi grein endurspeglar svo sannarlega þá saklausu barnæsku sem flest okkar á besta aldri upplifðu.

Ef þú hefur tíma þá endilega lestu hana. Hún hljóðar svo eftirfarandi......

Fólk eldra en 30 ára ætti að vera dáið ! eða vorum við bara heppinn?

Ég var að spjalla við vin minn um daginn um þá gömlu góðu daga og við komumst eiginlega að því að fólk eldra en 30 ára ætti í raun að vera dáið? Því samkvæmt löggjöfum og skriffinum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7., og fyrrihluta 8 áratugar síðustu aldar ekki að hafa lifað af. Barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu?  Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum og skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm. Þegar við fórum í bíltúra eða ferðalög þá vorum við ekki spennt niður í bílstóla eða fest við öryggisbelti, mörg okkar stóðu á milli farþegasætana? Og að fá far á vörubílspölli var sérlega skemmtilegt. Við borðuðum brauð með miklu smjöri og drukkum gos með sykri ( Miranda, Spur og Sinalco) en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika okkur. Við deildum gjarnan með öðrum sömu gosflöskunni, með sama lakkrísrörinu og allir sáttir og engin varð veikur af því.

Við gáfum okkar góðan tíma við byggja kassabíla úr ýmsu dóti og drasli sem við fundum ( stundum á haugunum) og þutum svo niður stærstu brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið. Við fórum út að leika snemma á morgnana vorum allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat. Engin hafði möguleika til að ná í okkur yfir daginn. Því þá voru engir farsímar. Engin GSM, óhugsandi.

Við áttum ekki playstation, nitendo 64, x-box, ipod, mp3 spilara, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, dvd spilara, ekki Gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma,gsm, heimilistölvu, fartölvu hvað þá að geta nota spjallrásir á internetinu.  Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.                                                                                                                      Við duttum í skurði, skárum okkur,fótbrotnuðum, brutum tennur, en engin var kærður fyrir þessi óhöpp.  Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt Að kenna neinum um - nema okkur sjálfum. Mannstu eftir óhappi?  Við slógumst urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.                  Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með nagalaspýtum og drasli og átum maðka.

Þrátt fyrir aðvaranir þá voru það ekki mörg auga sem duttu ekki út og ekki lifðu maðkarnir  inni í okkur til eilífðar.

Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.

Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik svo ekki sé minnst á löggu og bófaleik. Minnistæðastur leikurinn sem farin var í eftir kvöldmat var vasaljósaleikur þá söfnuðust krakkarnir í hverfinu saman á einum stað öll með sitt vasaljós og svo splundraðist hópurinn út í buskan, enginn skildi aldrei út á hvað leikurinn gekk en markmiðið var að reyna komast í mark Án þess að þurfa að kveikja á vasaljósinu, svo átti maður að reyna rýna út í myrkrið og gá hvort maður sá ljós og komast að því hver átti það, það Gat verið soldið erfitt þegar um 30 krakkar voru í leiknum.

Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur við stjórnuðum okkur sjálf.

Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt. Voru stundum færðir niður um bekk. En þeir lifðu af.

Það var farið í þrjú bíó á sunnudögum og Andrés Önd var á dönsku, sem hefur hjálpað mörgum námsmanninum í að fóta sig í norðulandamálunum seinna meir. Það var jú ýmislegt annað sagt en Gisp! og hva? í þeim.

Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.

Síðustu fimmtíu ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi,sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman.

Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar- sem er okkur sjálfum fyrir bestu. Við áttum gott líf.

( greinin birtist í Kópavogspóstinum árið 2004 og er eftir Gunnar Kr. Sigurjónsson) henni hefur verið örlítið breytt. Vonandi að mér verði fyrirgefið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband