7.7.2008 | 17:43
Þetta líkar mér :-)
Ekki það að ég sé á einhverjum gleðipillum
þá er ég bara svo ánægð að lokum vinnudegi að kíkja á þessa blessuðu síðu mínu og sjá að fólk hefur skrifað í gestabókina
ég hef ekki stundað það neitt að blogga en ákvað nú s.l vetur að prófa að búa til eitthvað í tilefni af því skemmtilega bréfi frá fyrrum skólafélögum að halda ætti bekkjarmót með fyrrum nemendum Reykjaskóla. Þannig er nú það. Ég var því ekki lítið glöð þegar ég sá að Sigga frá Bíldudal hafði kvittað fyrir sig
Sigga mín ef að þú lest þetta og kemur við hjá Nesbrauð þá verður þú að spyrja um mig. o.k ég ætla allavega að fá að heilsa þér.
lofa að vera ekkert uppáþrengjandi
hlakka bara til að hitta þig og fleiri. Ég kíkti svo inn á Reykjaskólasíðuna og sá að 33 eru búnir að skrá sig... hvað með alla hina.... iss þeir vita ekki afhverju þeir eru að missa af. Það verður bara gaman hjá okkur. Hilsen úr hólminum
það er blessuð blíðan og bæirnir allt um kring, sangria og sól. kveðja Habba
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.